Kokkteilar.is
Kokkteilar, hristir, hrærðir og allt þar á milli. Uppskriftir, fróðleikur og umræður
 
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Hér er ein bleik og skemmtileg Bellini-útgáfa fyrir áramótin....

vinotek.is
Bellini er einn vinsælasti kokkteill Ítalíu og var upphaflega settur saman á hinum fræga Harry's Bar í Feneyjum. Hér erum við með eina skemmtilega útgáfu þar sem við notum rabarbaralíkjör.
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Síðasti séns að skrá sig á póstlistann og komast í kampavínspottinn - dregið út á morgun!

www.vinotek.is
Við höldum áfram að draga út heppna lesendur af póstlistanum síðar í þessum mánuði. Verðlaunin nú í desember verða ekki af lakari taginu. Við munum draga út tvo lesendur. Annar þeirra hlýtur í verðlaun gjafaöskju frá Veuve-Clicquot með kampavínsflösku og tveimur glösum. ...
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Hér er hann kominn - vinningsdrykkur Erol Topals í Finlandia Cup í síðasta mánuði.

www.vinotek.is
Þessi drykkur Erol Topal á Radisson SAS sigraði örugglega í Finlandia Cup keppninni í síðasta mánuði og mun Erol því taka þátt í heimskeppninni í Finnlandi á næsta ári fyrir Íslands hönd.
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Litríkir og sætir líkjörar eru lykillinn á bak við marga bestu kokkteilana: Triple Sec, Parfait Amour, Blue Curacao og Amaretto svo nokkrir séu nefndir. En hvernig stendur á því að margir af þekktustu líkjörunum koma frá Hollandi?

vinotek.is
Hvernig stendur eiginlega á því að Hollendingar skuli vera leiðandi í framleiðslu á líkjörum með fyrirtækjum á borð við De Kuyper og Bols? Skýringin er söguleg. Í Hollandi hafði byggst upp mikill iðnaður í kringum framleiðslu á genever, brenndu maltvíni bragðbættu með einiberjum. ...
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Hrikalega flottur longdrink-kokkteill sem mun hafa unnið til verðlauna í Evrópu

vinotek.is
Maukið brómberjið í longdrink-glasi. Setjið vodka, Parfait Amour, limesafa og síróp í kokkteilhristara og hristið vel. Fyllið glasið að hálfu með muldum klaka. Setjið myntulafu ofan á klakann. Hellið úr kokkteilhristaranum í glasið. Fyllið upp með muldum klaka og toppið með sódavatni.
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Þetta er búið að vera einn heitasti kokkteillinn í Evrópu - þótt menn geti haft mismunandi skoðanir á nafninu....

vinotek.is
Þessi flotti kokkteill með vafasama nafnið var upprunalega búinn til í Englandi en nýtur nú gífurlegra vinsælda á meginlandi Evrópu enda hörkugóður, þótt deila megi um nafnið. Hér í útgáfu Fleur hjá Che Group í Rotterdam. Ávöxtinn er best að mauka með töfrasprota.
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Irish Coffee - svona til að hlýja manni í desemberkuldanum...

vinotek.is
Það veitir ekki af smá hita í skammdeginu og þá er fátt betra en Irish Coffee, sem er lygilega einfalt að gera. Írskt viský, kaffi og púðursykur...
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Fyrsti kokkteillinn úr Hollandsferðinni - eldheitur Chili Mojito

vinotek.is
Það er ekki bara á Íslandi sem að Mojito í hinum fjölbreyttustu útgáfum nýtur vinsælda. Þessa chili-heitu útgáfu setti Fleur Nitzsche hjá Che Group í Rotterdam saman fyrir Vínótekið.
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Vorum að koma frá Hollandi þar sem við fengum meðal annars nokkra tugi af heitustu kokkteiluppskriftunum þar í landi...

vinotek.is
Vínótekið hefur verið í Hollandi undanfarna daga, nánar tiltekið í Amsterdam og Rotterdam. Það var litið við á nokkrum af bestu veitingastöðum landsins og heitustu barnirnir heimsóttir. Þá var litið við ...
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Þessi jólalegi kokkteill frá Magnúsi Erni á Domo hefur hlotið nafnið Rauðnefur...

vinotek.is
Það er kominn tími á jólakokkteilana og Magnús Örn á Domo setti saman þennan kokkteil sem hann kallar Rauðnef sérstaklega fyrir Vínotekið og kokkteilar.is.
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Ískaldur og flottur jarðarberja Daiquiri - karíbahafið og Norður-Evrópa

vinotek.is
Þessi daiquiri frá barþjónunum á Vegamótum er flottur og ferskur, smá appelsínulíkjör og Kahlúa og svo fersk jarðarber og auðvitað fullt af klaka.
Silja Hanna
Silja Hanna
Mmmmm ... :)
23. nóvember kl. 11:19
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Þetta er einn af klassískustu íslensku kokkteilunum - Appolo - í nýrri útgáfu frá Veroniku á Silfri.

vinotek.is
Árið 1970 vann drykkur Jónasar Þórðarsonar Appolo 13 kokkteilkeppni Barþjónafélags Íslands og nafnið að sjálfsögðu undir áhrifum frá hinni misheppnuðu tunglferð Appolo 13 sem löngu síðar varð að kvikmynd með þeim Tom Hanks, Gary Sinise og Kvein Bacon.
Kokkteilar.is
Kokkteilar.is
Tekið til greina Steinþór - það er á dagskrá að bæta inn nokkrum góðum óáfengum...
22. nóvember kl. 15:32
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Einfaldur og klassískur - Passoa Orange

vinotek.is
Vínótekið er alhliða upplýsingavefur um mat og vín í eigu og umsjón Steingríms Sigurgeirssonar. Steingrímur hóf að rita greinar um vín í Morgunblaðið árið 1989 og um mat og veitingahús árið 1994. Hann ...
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Bollur eru að koma aftur í tísku - kannski vegna þess að þær eru svo hagstæðar - og alltaf nýtur Sangría vinsælda. Þessi uppskrift kemur frá Tapasbarnum..

vinotek.is
Vínótekið er alhliða upplýsingavefur um mat og vín í eigu og umsjón Steingríms Sigurgeirssonar. Steingrímur hóf að rita greinar um vín í Morgunblaðið árið 1989 og um mat og veitingahús árið 1994. Hann ...
Kokkteilar.is

Kokkteilar.is Glæsileg keppni á NASA í kvöld - kokkteilar.is voru í dómnefnd og sigur Erol Topals með drykkinn Dilek var verðskuldaður...

vinotek.is
Á þriðja tug barþjóna tóku þátt í Finlandia Vodka Cup en keppnin þar sem keppt var um titilinn "færasti barþjónn Íslands" var haldin á Nasa á fimmtudagskvöld. Keppendur máttu senda inn einn drykk, sem hvergi hafði verið notaður áður.