
Alþingi samþykkti nýverið lög um tekjuöflun ríkisins sem fela í sér margvíslegar breytingar á gildandi lögum um tekjuskatt. Meðal þeirra er að á árinu 2010 verður í fyrsta sinn innheimt þrepaskipt staðgreiðsla á tekjuskatti í þremur þrepum.

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 85 milljörðum króna fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við rúma 70 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 21% á milli ára. Aflaverðmæti í september...

Fyrsti hluti láns frá Norðurlöndunum til Íslands hefur verið afgreiddur í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þetta eru 300 milljónir evra.

Í morgun samþykkti Alþingi frumvarp sem heimilar einstaklingum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, að taka út meira af séreignarlífeyrissparnaði sínum en áður var leyfilegt. Nú verður hæg...

Efnt verður til viðamikils átaks til að skapa fólki án atvinnu fjölbreytt tækifæri fyrir til starfa, menntunar eða annars konar virkni. Á næsta ári verður 1,3 milljarði króna varið í verkefnið. Sérstök áhersla v...

www.visir.is
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Angela Merkel, kanslari Þýskalands hittust á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í dag samkvæmt frétt þess efnis á heimasíðu ráðuneytisins. ...

Á vef ríkisskattstjóra getur nú að líta útreikning á því hvernig tekjuskattur og útsvar einstaklinga verður í staðgreiðslu ársins 2010 miðað við forsendur í frumvarpi til laga um tekjuöflun ríkisins. Hafa skal í huga að ...

Íslensk stjórnvöld, skilanefnd Landsbanka Íslands hf. og Landsbankinn (NBI hf) hafa undirritað endanlegt samkomulagi um uppgjör á eignum og skuldum vegna skiptingar bankans. Fulltrúar helstu kröfuhafa hafa tekið þátt í samningaviðræðunum.

visir.is
Jóhanna er fyrst konan til þess að verða tvisvar valin kona ársins af Nýju Lífi, fyrst árið 1993. Við það tækifæri var hún spurð að því hvort hún sæi það fyrir sér að kona yrði forsætisráðherra á næstunni og hún var efins. „Og þó, það er séns,“ sagði hún líka. Mynd/pjetur

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti úr 11% í 10% og lækka vexti á viðskiptareikningum innlánsstofnana um 0,5 prósentur í 8,5%. Þetta eru sömu prósentulækkanir og 5. nóvember þegar stýrivöxtum var breytt síðast.

Atvinnuleysi jókst um 5,3% að meðaltali milli október og nóvember samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar eða um 675 manns. Í nóvember voru að jafnaði 13.357 án vinnu eða 8%, en á sama tíma í fyrra voru það 3,3% eða 5.445 manns.

Ríkisstjórnin lýsir því yfir að yfirlýsing frá 3. febrúar sl. um að allar innstæður í innlendum bönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi séu tryggðar, er enn í fullu gildi. Yfirlýsingin verður ek...

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmlega 2,4 milljörðum króna í nóvember. Þar af voru tæpir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 900 milljónir vegna annarra lána.

Fjórtán frumvörp til laga og breytinga á gildandi lögum um hlutafélög og fjármálamarkað hafa verið lögð fram af efnhags- og viðskiptaráðherra á Alþingi.












